27. jan 2022

Tæp 20 tonn af rusli síuð úr fráveituvatni fyrsta árið

Nú er rúmlega eitt ár liðið frá því að hreinsistöð fráveitu í Sandgerðisbót á Akureyri var tekin í notkun en þar er allt fráveituvatn á Akureyri hreinsað áður en því er veitt út í fjörðinn. Auk þess að minnka það rusl sem berst út í Eyjafjörðinn hefur tilkoma hreinsistöðvarinnar einnig leitt til þess að dregið hefur úr gerlamengun meðfram strandlengjunni á Akureyri. Hreinsistöðin er því sannarlega stór áfangi í umhverfismálum fyrir samfélagið allt við Eyjafjörð. Í skýrslu Umhverfisráðuneytisins „Ástand hafsins við Ísland“ sem kom út í september 2021, kemur m.a. fram að ástand sjávar (viðtaka) í Eyjafirði er gott og áhrif frá landi séu lítil horft til næringarefna.

Tæplega 20 tonn af rusli á einu ári

Á fyrstu 12 mánuðum hreinsistöðvarinnar hafa 19,7 tonn af óæskilegum úrgangi verið síuð frá fráveituvatninu sem annars hefðu borist út í Eyjafjörðinn. Það er svo sannarlega umhugsunarvert að svo mikið af rusli berist í fráveitukerfi Akureyringa á 12 mánuðum, með tilheyrandi ógn fyrir lífríkið auk þess sem það þyngir rekstur fráveitukerfisins og eykur kostnað vegna hreinsunar og förgunar á úrgangi.

Klósettið er ekki ruslafata

Í fráveitukerfi Akureyringa eru margar dælur sem sjá til þess að fráveituvatn berist í hreinsistöðina í Sandgerðisbót þar sem það er hreinsað og því síðan veitt út í sjó. Það er mikilvægt að muna að t.d. blautklútar eiga ekki heima í fráveitukerfinu vegna þess að þeir, ásamt öðrum hlutum sem því miður eiga til að lenda í klósettinu, geta stíflað lagnir og skemmt dælubúnað. Kemísk efni, til að mynda málning, hreinsiefni og olíur, eiga aldrei að fara í fráveitukerfið.

Hér að neðan má sjá auglýsingu sem Norðurorka hefur verið að birta um óleyfilegt niðurhal. Þegar smellt er á mynd opnast hún í PDF formi og er því skýrari, t.d. til útprentunar.

   

Við hvetjum ykkur til að prenta myndirnar út og hengja upp á viðeigandi stöðum. Þannig hjálpumst við öll að við að minna á :-)