29. maí 2020

Hreinsunarátak starfsfólks Norðurorku

Eftir vinnu í gær tók hópur starfsfólks Norðurorku, auk maka, barna og barnabarna, til hendinni.

Hópurinn sem samanstóð af um það bil 35 einstaklingum, stórum og smáum,  skipti sér í minni hópa og fór í næsta nágrenni við höfuðstöðvar Norðurorku og tíndi rusl.

Á vorin bíða jú ýmis verkefni og eitt þeirra er að fegra umhverfið með því að tína upp rusl sem finna má á víð og dreif eftir veturinn. Því miður er það svo að rusl fýkur út um víðan völl og að því komst ruslatínslufólk Norðurorku fljótt í gær. Það kom fólki á óvart hversu mikið rusl reyndist vera á svæðinu, ekki síst plast, en á tveimur tímum var ógrynni af rusli safnað saman. HÉR má sjá myndir frá deginum.  

Umhverfismál hafa á undanförnum árum fengið aukið vægi hjá Norðurorku og rímar þetta ruslasöfnunarátak vel við umhverfisstefnu Norðurorku. Fyrirtækið leggur áherslu á virðingu við náttúruna og jákvætt kolefnisfótspor en í því felst m.a. að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif. Í þessu sambandi má geta þess að um þriðjungur þjónustubíla Norðurorku gengur fyrir vistvænum orkugjöfum, ellefu metangasbílar og einn rafmagnsbíll.

Þetta er í  þriðja sinn sem starfsfólk Norðurorku tekur þátt í hreinsunarátaki og tínir rusl en miðað við hversu mikið rusl safnaðist á aðeins tveimur tímum í nærumhverfi Norðurorku er ljóst að átak sem þetta þarf að hafa sem fastan lið á hverju vori.

Að loknu góðu dagsverki var sjálfboðaliðunum að sjálfsögðu boðið upp á pizzu.