15. maí 2025

Hreinsunarátak starfsfólks Norðurorku

Margar hendur vinna létt verk! Hópmyndataka að loknu velheppnuðu hreinsunarátaki.
Margar hendur vinna létt verk! Hópmyndataka að loknu velheppnuðu hreinsunarátaki.

Árlegt hreinsunarátak starfsfólks Norðurorku fór fram í gær, miðvikudaginn 14. maí. Með hækkandi sólu kemur í ýmislegt í ljós, á milli trjáa og ofan í skurðum. Glaðlegir túnfíflar, spriklandi köngulær, skærgrænt gras - og því miður oft talsvert rusl. Þá er kjörið tækifæri til að taka höndum saman og hreinsa til, áður en grasið hækkar og runnarnir þéttast.

Starfsfólk Norðurorku ásamt fjölskyldum fór um með plokktangir og hrífur og tíndu rusl í kringum höfuðstöðvarnar á Rangárvöllum. Veðurguðirnir voru heldur betur með okkur í liði og hjálpuðu til við að skapa góða stemningu við ruslatínsluna. Hreinsunarátakið er orðið að skemmtilegri hefð hjá fyrirtækinu þar sem starfsfólk ásamt fjölskyldum sameinast um að fegra nærumhverfi sitt. Að tína rusl snýst þó um meira en að hreinsa til - þetta er líka frábært tækifæri til útivistar, hreyfingar, samveru og núvitundar, þar sem öll leggja sitt af mörkum í þágu umhverfisins. Miklu rusli var safnað í poka á skömmum tíma. Að verki loknu settust plokkarar saman undir berum himni og gæddu sér á dýrindis pizzum í sólinni – vel að því komnir eftir vel unnið verk.

Þess má geta að Norðurorka leggur mikla áherslu á umhverfismál í allri sinni starfsemi. Helstu aðgerðir til að draga úr kolefnislosun eru meðal annars með flokkun sorps auk þess sem leitast er við að nýta vistvæna bíla eins og mögulegt er. Sjá nánari upplýsingar hér: Umhverfismál | Ársskýrsla (no.is)

Norðurorka er stolt af samhentu og umhverfismeðvituðu starfsfólki sem leggur sig fram um að gera samfélagið hreinna og betra.