26. jún 2026

Hver er munurinn á blautþurrku og klósettpappír í fráveitulögnum?

Óskar Þór gerir hér létta tilraun með því að líkja eftir ferðalaginu í gegnum lagnirnar, þar sem munurinn sést mjög vel. Blautþurrkur eru eitt stærsta vandamálið í fráveitukerfi Norðurorku, enda eiga þær ekki að fara í klósettið heldur í ruslið.

Stíflurnar geta myndast í lögnum innan lóða og þar þurfa húseigendur sjálfir að losa þær. Það getur því verið dýrt að setja blautþurrkur í klósettið, bæði fyrir húseigendur en einnig fyrir samfélagið allt þegar stíflurnar myndast í fráveitukerfi Norðurorku.

Sýnum ábyrgð og setjum ekkert annað í klósettið en piss, kúk, aðra líkamsvessa og klósettpappír.