Um miðjan október var unnið að kortlagningu jarðhitasvæðisins á Hjalteyri, þegar jarðfræðingur frá ÍSOR mældi þykkt lausra jarðlaga á svæðinu með svokallaðari jarðsjá. Þrjár vinnsluholur eru á Hjalteyri en kerfið þar hefur reynst eitt öflugasta lághitasvæði á landinu og þótt víðar væri leitað. Síðustu tuttugu ár hefur svæðið verið stærsta vinnslusvæði Norðurorku og séð Akureyri og nærsveitum fyrir um það bil 50-60% af heitu vatni sem íbúar þar nýta. Svæðið hefur staðið undir allri aukningu í heitavatnsnotkun síðustu tuttugu ár en en nú hafa komið fram vísbendingar í efnagreiningum sem benda til að ekki sé lengur svigrúm til þess að halda áfram að auka vinnslu úr kerfinu.
Til að auka skilning á innstreymi seltu vinnur NO að því í samstarfi við ÍSOR að kortleggja svæðið sem fyrr segir. Söfnun gagna verður nýtt til að smíða nákvæmt reiknilíkan af kerfinu á Hjalteyri, til að herma byggingu og eðli þess.
Jarðsjáin sendir rafsegulbylgjur niður í jörðina og mælir endurkast þeirra. Hluti bylgjunnar getur endurkastast þar sem eiginleikar jarðlaga breytast, til dæmis við skil milli jarðvegs eða sets og undirliggjandi berggrunns. Með því að ganga með tækið eftir fyrirfram ákveðnum mælilínum má á skömmum tíma safna miklu magni gagna, sem gefa mynd af jarðlögum undir yfirborði, án þess að valda jarðraski. Nú tekur við úrvinnsla og túlkun gagnanna hjá ÍSOR. Niðurstöðurnar verða sýndar á korti og í túlkuðum þversniðum sem gefa mynd af uppbyggingu jarðlaganna, með sérstakri áherslu á setþykkt og lögun berggrunnsins. Jafnframt verður kannað hvort í gögnunum megi greina ummerki um bergganga, sprungur eða misgengi sem kunna að leynast hulin undir setinu.

Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15