29. jún 2019

Kaldavatnslaust í Hrísey - Viðgerð lokið

Uppfært kl 12.30

Viðgerð er lokið í Hrísey og vatn er komið á.

Fyrst um sinn er fólk beðið um að fara sparlega með vatnið þar sem lítið er í tanknum. 

Um leið og við biðjum íbúa og gesti Hríseyjar afsökunar á þeim óþægindum sem bilunin kann að hafa valdið þökkum við fyrir þolinmæðina.

 

Upphafleg frétt (kl. 9.20)

Vegna bilunar er nú kaldavatnslaust í Hrísey.
Unnið er að viðgerð.