8. júl 2016

Lokað fyrir heitt vatn í hluta Glerárþorps 11. júlí

Vegna vinnu við dreifikerfi verður lokað fyrir heitt vatn í hluta Glerárþorps næstkomandi mánudag 11. júlí 2016.

Áhrifasvæði lokunarinnar má sjá á neðangreindri mynd.

Lokunin er frá kl. 8:00 um morguninn og frameftir degi eða þar til verkinu lýkur.

Viðskiptavinir eru vinsamlega beðnir að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs.

Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

 

Lokunarsvæði hitaveitu í hluta Glerárþorps mánudaginn 11. júlí 2016