22. apr 2026

Myndir frá ársfundi 2026

Ársfundur Norðurorku 2026 var haldinn í Hofi mánudaginn 20. apríl.

Í fyrri hluta fundarins fjallaði Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, um áfallaþol ómissandi innviða í breyttri heimsmynd, Katrín Helga Halldórsdóttir, lögfræðingur Samorku, um lagaumgjörð orku- og veitugeirans og Gestur Pétursson, forstjóri Umhverfis- og orkustofnunar um mikilvægi sérleyfisfélaga.

Eftir kaffihlé var komið að starfsfólki Norðurorku að stíga í pontu. Fyrst fjallaði Sigurveig Árnadóttir, verkefnastjóri rannsókna og viðhalds, um rannsóknaráætlun hitaveitu og stöðu vatnsöflunar. Því næst var komið að Erlendi Helga Jóhannessyni, deildarstjóra þjónustu, sem fjallaði um snjallmælavæðingu og áskoranir og ávinning hennar. Að lokum var komið að Erlu Björgu Guðmundsdóttur Valgerðardóttur, mannauðsstjóra, sem fjallaði um samskipti á vinnustöðum nútímans. Erla fékk fundargesti til að taka þátt í léttri æfingu í samskiptum, sem var afar áhugaverð en sömuleiðis ögn krefjandi og fékk fólk til að tala saman eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Fundarstjóri var Knútur Emil Jónasson, oddviti sveitarstjórnar í Þingeyjarsveit.

Myndir: Axel Þórhallsson