17. nóv 2026

Neyðarstjórn í viðbragðsstöðu vegna hitaveitu

Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu vegna hitaveitunnar á Akureyri, en staðan í birgðageymum bæjarins hefur verið fyrir neðan öryggismörk síðan í gærkvöldi, mánudaginn 16. nóvember. Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna og heldur sú vinna áfram eins lengi og þarf. Staðan er viðkvæm og lítið má út af bregða.

Við Mímisbraut er olíuketill sem er nýttur í neyð og unnið er að því að gangsetja hann. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Markmiðið er að hann verði í gangi í sem skemmstan tíma til að lágmarka olíunotkun.

Kuldakastið síðustu daga hefur haft þau áhrif að notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslugetu. Óskað hefur verið eftir því við stórnotendur að þeir dragi úr notkun á heitu vatni eins og kostur er, til dæmis hefur verið skrúfað fyrir upphitun íþróttavalla í bænum svo dæmi sé tekið. Þeim eru færðar þakkir fyrir skjót viðbrögð.

Almennir notendur eru beðnir um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum. Góð ráð eru að loka gluggum, draga úr innspýtingu í snjóbræðslukerfi eins og hægt er og stilla ofnakerfi á þann hátt að nýting sé sem best. Auk þess eru þeir notendur sem hafa heita potta beðnir um að láta ekki renna í þá.

Góð ráð um nýtingu á heitu vatni má finna hér.