Góður hópur starfsfólks Norðurorku sótti Fagþing Samorku sem haldið var í Reykjanesbæ, í maí 2026. Á ráðstefnunni var fjallað um hita-, vatns- og fráveitur frá ýmsum sjónahornum og fyrirlesarar komu frá veitufyrirtækjum um allt land, auk fulltrúa frá fyrirtækjum sem selja vörur og þjónustu þessu tengdu.
Fulltrúar Norðurorku fjölluðu þar að mestu leyti um hitaveitu og starfsemi Norðurorku á því sviði. Sem dæmi ná nefna jarðhitaleit, áskoranir í uppbyggingu dreifikerfa hitaveitu og samstarfið við TDK um nýtingu glatvarma.
Á hverju ári er haldin Fagkeppni Samorku þar sem lið frá aðildarfyrirtækjum Samorku keppa um titilinn Fagmeistari Samorku. Norðurorka sendi að sjálfsögðu lið í keppnina, sem stóð sig með eindæmum vel og vakti athygli fyrir fumlaus vinnubrögð og yfirvegun.
Í ár var keppt í fimm keppnisgreinum:
Nánar er hægt að lesa um þessar greinar hér.
Hér að neðan má sjá myndir af starfsfólki Norðurorku á Fagþingi, en fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Samorku.




Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15