5. mar 2024

Norðurorka hlýtur viðurkenningu fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum

Frá vinstri: Þorvaldur Þorsteinsson og Lovísa Ólafsdóttir frá VÍS. Starfsfólk Norðurorku: Gauti Þór …
Frá vinstri: Þorvaldur Þorsteinsson og Lovísa Ólafsdóttir frá VÍS. Starfsfólk Norðurorku: Gauti Þór Grétarsson, Friðþór Smárason, Gunnur Ýr Stefánsdóttir, Anna Klara Hilmarsdóttir, Guðlaug Erla Ágústsdóttir, Eyþór Björnsson, Elías Wium Guðmundsson ásamt Guðnýju Helgu Herbertsdóttur forstjóra VÍS.

Forvarnaráðstefna VÍS var haldin í fjórtánda sinn í Hörpu þann 29. febrúar síðastliðinn. Á ráðstefnunni sem haldin er árlega er fjallað um öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana frá öllum hliðum.

Rúsínan í pylsuendanum voru Forvarnaverðlaun VÍS en þau hljóta fyrirtæki sem þykja skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Verðlaunað var í tveimur flokkum og er horft til sterkrar öryggismenningar og markvissrar vinnu við að efla öryggisvitund og öryggishegðun meðal starfsfólks.

Í flokknum stærri fyrirtæki var Norðurorka í hópi þeirra þriggja fyrirtækja sem tilnefnd voru til Forvarnarverðlauna VÍS og hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum.

Við erum afar stolt og glöð að tilheyra þeim hópi fyrirtækja sem leggur áherslu á öryggi í allri sinni starfsemi og munum halda ótrauð áfram á sömu braut. Gert var myndband í kjölfar tilnefningarinnar þar sem farið er yfir þær ýmsu hliðar öryggismála sem hugað er að í starfseminni.

Horfa á myndband