Neyðarkall björgunarsveitanna fagnar 20 ára afmæli í ár og er tileinkaður þúsundum sjálfboðaliða sem hafa staðið að þessari mikilvægu fjáröflun undanfarna tvo áratugi. Líkt og undanfarin ár keypti Norðurorka stóra Neyðarkallinn og styður þannig við bakið á því frábæra og óeigingjarna fólki sem styður við okkur öll þegar við þurfum á að halda. Hagnaður af sölunni rennur til björgunarsveita og slysavarnadeilda og er hann notaður til að efla og styrkja starfið.
„Björgunsveitirnar á Íslandi vinna ómetanlegt starf og við sjáum það reglulega í fréttum hversu ótrúlegir sjálfboðaliðar þeirra eru. Hjá Norðurorku vinnur fólk sem tekur virkan þátt í starfsemi björgunarsveita og reynsla þeirra og þekking nýtist bæði í daglegum störfum og í sjálfboðaliðastarfi björgunarsveitanna. Eins og undanfarin ár kaupir Norðurorka stóra Neyðarkallinn og styrkir þannig hið mikilvæga starf björgunarsveitanna,“ segir Eyþór Björnsson forstjóri Norðurorku.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15