25. nóv 2022

Norðurorka styrkir Jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðar

Jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins er samstarf Mæðrastyrksnefndar, Rauða krossins, Hjálparstarfs kirkjunnar og Hjálpræðishersins á Akureyri. Markmið verkefnisins er að styðja efnaminni fjölskyldur og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu. Því miður eru mörg heimili á svæðinu sem eru illa stödd fjárhagslega og þurfa á aðstoð að halda. Söfnunarfé sem safnast er notað til kaupa á gjafakortum sem einstaklingar geta verslað mat fyrir. 

Norðurorka hefur undanfarin ár styrkt Jólaaðstoðina á Akureyri en vegna stöðunnar í samfélaginu um þessar mundir var ákveðið að gera enn betur og styrkja verkefnið um 1.500.000 kr.

Það er virkilega ánægjulegt að Norðurorka skuli hafa möguleika á að styðja þetta góða og þarfa verkefni og vonandi að fleiri fyrirtæki bætist í hóp Norðurorku og annarra fyrirtækja sem lagt hafa málefninu lið.


*Þeim sem vilja styrkja Jólaaðstoð Velferðarsjóðs Eyjafjarðarsvæðisins er bent á eftirfarandi upplýsingar um söfnunina: 

0302-26-003533 kt. 651121-0780.