1. júl 2020

Ný hreinsistöð tengd við fráveitukerfið - Uppfært 17. júlí

Uppfært 17. júlí 2020

Því miður er verkið að taka lengri tíma en áætlað hafði verið. Reiknað er með að verkið klárist í næstu viku, eigi síðar en 25. júlí.

Fólk er því áfram beðið að sýna aðgát skv. neðangreindu og stunda ekki sjóböð meðan á framkvæmdum stendur.

 

Áætlað er að mánudaginn 6. júlí hefjist vinna við tengingu nýrrar hreinsistöðvar fráveitu við fráveitukerfið á Akureyri. Stefnt er að því að ljúka verkinu á fjórum til fimm dögum, en einungis er hægt að vinna verkið á fjöru og er um nokkra verkþætti að ræða.

Meðan á vinnunni stendur mun megninu af fráveituvatni frá Akureyri verða hleypt út um neyðarkerfi við sunnanverðan Glerárós. Einnig verður fráveituvatni hleypt út í voginn sunnan Krossanes (sjá myndir).

Að framkvæmdum loknum mun fráveituvatnið fara um nýja útrás við hreinsistöðina sem er tæplega 400 metra löng og nær niður á 40 metra dýpi. Áætlað er að í sumar verði hreinsistöðin prófuð og síðan tekin endanlega í notkun seinni hluta ágústmánaðar.

Fólk er beðið um að sýna aðgát og stunda ekki sjóböð á viðkomandi svæðum meðan á tengiframkvæmdum stendur.

Sjá myndir hér að neðan af þeim neyðarútrásum sem verða nýttar.