20. okt 2026

Ný stjórn Norðurorku

Ný stjórn að loknum aðalfundi. Frá vinstri: Eyþór Björnsson forstjóri, Jana Salóme Ingibjargar Jósef…
Ný stjórn að loknum aðalfundi. Frá vinstri: Eyþór Björnsson forstjóri, Jana Salóme Ingibjargar Jósefsdóttir (varamaður í stað Hlyns Jóhannssonar sem var erlendis), Preben Jón Pétursson, Helga Björg Eiríksdóttir, Ágúst Torfi Hauksson og Arna Rut Gunnarsdóttir. Mynd: Skapti Hallgrímsson - Akureyri.net
Nýir fulltrúar voru skipaðir í stjórn Norðurorku á aðalfundi þann 20. október 2026, í kjölfar breytinga á samþykktum félagsins. Ein af þeim breytingum er sú að í stjórn eru nú tveir óháðir stjórnarmenn, tilnefndir af Akureyrarbæ, til viðbótar við þrjá fulltrúa stjórnmálaflokka sem kjörnir eru.
 
Ný stjórn Norðurorku er eftirfarandi:

Arna Rut Gunnarsdóttir
Ágúst Torfi Hauksson (tilnefndur af Akureyrarbæ)
Helga Björk Eiríksdóttir (tilnefnd af Akureyrarbæ)
Hlynur Jóhannsson
Preben Jón Pétursson
 
Til vara:
Elín Björg Ragnarsdóttir (tilnefnd af Akureyrarbæ)
Geir Kristinn Aðalsteinsson
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir