6. júl 2023

Nýir eigendur Orkeyjar

Ásgeir Ívarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Gefnar og Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku.
Ásgeir Ívarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Gefnar og Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku.

Í apríl síðastliðnum var lífdísilframleiðsla Orkeyjar auglýst til sölu en fyrirtækið hefur verið í 100% eigu Norðurorku frá árinu 2020. Frá því að Norðurorka eignaðist félagið hefur verið unnið að því að kanna grundvöll fyrir lífdísilframleiðslu Orkeyjar. Athugað hefur verið hvernig tryggja megi gæði framleiðslunnar auk þess sem hráefnisstraumar hafa verið athugaðir. Lífdísilframleiðsla er þó ekki hluti af kjarnastarfsemi Norðurorku og nú er svo komið að rekstur Orkeyjar stendur á spennandi kaflaskilum. Rekstrinum hefur verið sýndur áhugi og eftirspurn eftir lífdísil er að aukast, bæði sem eldsneyti og í aðra vinnslu. Stjórn Norðurorku taldi því að nú væri tímabært að hleypa öðrum, kraftmiklum aðilum að sem geta haldið áfram að þróa starfssemi Orkeyjar og auka veg fyrirtækisins.

Kynningarfundur um söluna var haldinn 25. apríl þar sem farið var yfir rekstur og stöðu félagsins, auk þess sem söluferlið var kynnt og þær kröfur sem gerðar voru til væntanlegra kaupenda. Eitt tilboð barst sem Norðurorka samþykkti enda uppfyllti það allar þær kröfur sem settar voru fram. Gefn efh. eignaðist Orkey að fullu 1. júlí síðastliðinn.

Starfsfólk Gefnar hefur markverða þekkingu og reynslu af framleiðslu lífdísils sem og notkun hans. Gefn stefnir á áframhaldandi rekstur Orkeyjar á Akureyri og er það von Norðurorku og trú að Orkey dafni vel með nýjum eigendum. Við óskum Gefn innilega til hamingju.

Frekari upplýsingar um Orkey

Félagið Orkey var stofnað á Akureyri í ársbyrjun 2007. Orkey tekur á móti notaðri steikingarolíu án nokkurs kostnaðar og framleiðir lífdísil. Við það sparast urðunargjald á tugum tonna af úrgangi á ári sem annars fellur á veitingahús og mötuneyti. Úr verður verðmæt vara með mikinn virðisauka því einnig sparast innflutningur á eldsneyti. Í ferlinu er úrgangurinn hvarfaður við metanól. Orkey leggur metnað í að nota eins umhverfisvænt metanól og fæst hverju sinni. Framleiðslan er einstök að því leyti að hún nýtir hreina íslenska orku til að breyta úrgangi í eldsneyti. Úrgangi sem annars gæti endað í fráveitukerfi bæjarins eða í urðun. Ávinningurinn er því okkar allra.