28. okt 2026

Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki 2027

Styrkþegar eða fulltrúar þeirra að lokinni úthlutun fyrir árið 2026 ásamt Eyþóri Björnssyni forstjór…
Styrkþegar eða fulltrúar þeirra að lokinni úthlutun fyrir árið 2026 ásamt Eyþóri Björnssyni forstjóra Norðurorku og Hlyni Jóhannssyni þáverandi stjórnarformanni Norðurorku. (Mynd: Axel Þórhallsson)

Opið er fyrir umsóknir um samfélagsstyrki Norðurorku fyrir árið 2027. 

Markmið með samfélagsstyrkjum félagsins er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðlar að farsælli þróun samfélagsins, lífsgæðum og fjölbreyttu mannlífi.

Styrkir eru fyrst og fremst veittir til starfsemi á starfssvæði Norðurorku en einnig hafa verið veittir styrkir til verkefna sem taka til landsins alls.

Umsóknafrestur er til og með mánudagsins 16. nóvember 2026.

Smelltu hér til að sækja um samfélagsstyrk.