Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Jóhann Páll Jóhannsson, heimsótti Norðurorku í dag ásamt Stefáni Guðmundssyni ráðuneytisstjóra og kynnti sér starfsemi fyrirtækisins. Framkvæmdaráð Norðurorku auk öryggis- og umhverfisstjóra tók á móti Jóhanni og Stefáni og veitti þeim innsýn í verkefni Norðurorku og þær áskoranir sem fyrirtækið stendur frammi fyrir. Þá óskaði ráðherra sérstaklega eftir kynningu á glatvarmavirkjun NO í álþynnuframleiðslu TDK við Krossanes.
Á fundinum voru einnig ýmis verkefni rædd sem bæði ráðuneytið og veitufyrirtæki eru almennt að vinna að og hvar tækifæri liggi til frekara samstarfs varðandi allar þær veitur sem Norðurorka sinnir.
„Það er afar ánægjulegt að ráðherra gefi sér tíma til að heimsækja Norðurorku og gefi okkur þannig tækifæri til að ræða beint við hann um þau mál sem eru efst á baugi í okkar starfi. Áskoranir framundan eru töluverðar, hvort sem litið er til hitaveitu eða vatnsveitu og sömuleiðis eru kröfur um fráveitu sífellt að aukast og því í mörg horn að líta í okkar daglega starfi,“ segir Eyþór Björnsson forstjóri Norðurorku.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15