24. des 2017

Rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis - Viðgerð lokið.

Vegna bilunar í spennistöð við Miðhúsabraut varð rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis fyrr í kvöld (sjá kort).
Bruni kom upp í spennistöðinni rétt fyrir klukkan sex, viðgerð gekk framar vonum og er nú lokið.
Hrós fá allir sem að komu fyrir góð viðbrögð.

Norðurorka óskar öllum gleðilegra jóla.