21. apr 2018

Rafmagnsleysi í hluta Síðuhverfis og við Krossanes

Bilun á háspennustreng (strengur slitinn í sundur við gröft) orsakaði rafmagnsleysi á nokkuð stóru svæði milli kl. 17.00 og 18.00 í dag í hluta Síðuhverfis.
Hægt var að koma rafmagni aftur á eftir öðrum leiðum um klukkan 18.00
Þó eru dreifistöðvar nr. 44 & 108 sem eru út við Krossanes ennþá úti en viðgerð stendur yfir og ætti að vera lokið fyrir miðnætti.​

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.