12. jún 2026

Sigurveig á Alþjóðaráðstefnu um jarðhita

Sigurveig Árnadóttir, verkefnastjóri rannsókna og viðhalds hjá Norðurorku, hefur verið í Calgary í Kanada síðustu daga á Alþjóðaráðstefnu um jarðvarma (WGC). Þetta er stærsti alþjóðlegi viðburðurinn á sviði jarðhita, haldinn á þriggja ára fresti. Þar koma saman vísindafólk, fulltrúar orkufyrirtækja, tæknifyrirtækja, stjórnvalda, og fjárfestar til að ræða allt það nýjasta í þróun jarðhita, orkuskipta og nýsköpun á þessu sviði.

Ísland er eitt sýnilegasta landið á ráðstefnunni í ár, en það er opinbert samstarfsland hennar í ár (e. official country partner.) Um 130 Íslendingar voru viðstaddir þingið og hefur hópurinn aldrei verið stærri, en Ísland er leiðandi á sviði jarðhita á heimsvísu.

"Það hefur sýnt sig hér á ráðstefnunni hversu framalega Ísland er á sviði jarðhita og ég hef hlustað á fjölmörg erindi og kynningar á því nýjasta í jarðhitarannsóknum og jarðhitanýtingu víðsvegar um heiminn, enda er hér margt af fremsta vísindafólki heims á þessu sviði og gríðarleg þekking sem það deilir. Það er mikilvægt fyrir jarðhitaleit á svæði Norðurorku að við séum að nýta allra nýjustu þekkingu og tækni," segir Sigurveig sem einnig er doktor í jarðfræði. Einn fyrirlesturinn á ráðstefnunni var einmitt um jarðhitaleit í Eyjafirði, sem Egill Árni Guðnason kynnti en hann er fyrsti höfundur fræðigreinar um málefnið sem Sigurveig er meðhöfundur að. Greinin fjallar um jarðhitasvæði Norðurorku og jarðskjálftamæltanet sem Norðurorka og ÍSOR reka í sameiningu í Eyjafirði til að vakta smjáskjálfta og kortleggja virkar sprungur. Að auki fjallar hún um nýlegar segulmælingar ÍSOR á Hjalteyri.

Lesa má nánar um þátttöku Íslands á ráðstefnunni á vef Íslandsstofu.