19. nóv 2018

Styrkir til samfélagsverkefna - Umsóknafrestur liðinn

Á haustdögum var auglýst eftir umsóknum um styrkir til samfélagsverkefna vegna ársins 2019. 

Umsóknarfrestur var til og með 18. nóvember 2018.  

Úthlutunarnefnd tekur nú til starfa og verður tillaga hennar tekin til afgreiðslu á stjórnarfundi Norðurorku í  desember.  Í framhaldinu verður umsækjendum send tilkynning um niðurstöðuna.

Úthlutun styrkja fer fram við formlega athöfn í byrjun árs 2019.