2. jún 2026

Lítil gerlamengun í sjónum við Akureyri

Síðustu tvær sýnatökur í sjó meðfram strandlengju Akureyrar sýna að umbætur í fráveitu bæjarins hafa skilað árangri, en auk þess spila áhrif af auknu sólarljósi hlutverk í hraðara niðurbroti gerla. Þetta sést vel á nýju og uppfærðu korti á vef Norðurorku, sem er nú gagnvirkt og hægt að skoða með ítarlegri hætti en áður.

Norðurorka og Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra hefur sinnt eftirliti með fráveitu meðfram strandlengju Akureyrar frá árinu 2005, þar sem reglulega eru tekin gerlasýni til að fylgjast með hreinleika sjávar.

Stöðugt er unnið að því að bæta fráveitu Akureyrarbæjar og stór liður í því var opnun hreinsistöðvar árið 2020. Eftir sem áður þarf að fylgjast með strandlengjunni og finna með því punkta í fráveitukerfinu þar sem gera þarf úrbætur. Til dæmis hafa verið gerðar breytingar á fráveitu við Glerá, þar sem folk á húsbílum gat tæmt ferðaklósett en sá úrgangur skilaði sér ekki rétt í fráveitukerfið. Einnig þurfti að bæta eldri tengingar í Lækjargili en mælingar í kringum félagssvæði Nökkva sýndu reglulega aukið magn gerla.

Sýnatakan er því áfram mikilvægur þáttur í fráveitu Norðurorku og uppfært kort gerir gögnin nú aðgengilegri öllum sem hafa áhuga á að skoða þau.

Smelltu hér til að skoða kortið og nánari upplýsingar um sýnatöku við strandlengjuna.