28. feb 2024

Sýnum aðgát í kringum götuskápa

Götuskápur í Freyjunesi sem nú er búið að skipta út af augljósum ástæðum.
Götuskápur í Freyjunesi sem nú er búið að skipta út af augljósum ástæðum.

Götuskápar eru mikilvægur hluti af dreifikerfi rafmagns.

Á ári hverju verða götuskápar fyrir tjóni vegna ákeyrslu. Í einhverjum tilfellum eru tjónin minniháttar þannig að skápurinn einungis skekkist lítillega en í öðrum tilfellum er tjónið meira og afleiðingarnar geta orðið alvarlegar. Fyrir utan rafmagnsleysi sem oft fylgir tjóni á götuskáp, þá geta götuskáparnir breyst í slysagildru og orðið hættulegir þeim sem þá snerta.

Hér má sjá tvo götuskápa sem keyrt hefur verið á nýlega. Fyrri skápurinn var í Hálöndum og ef vel er að gáð má sjá svartan blett inni í skápnum eftir ljósboga. Nú er búið að gera skápinn hættulausan og hefur honum verið skipt út. Seinni skápurinn var í Freyjunesi og er nú einnig búið að fjarlægja hann og koma öðrum fyrir.

Götuskápur í Hálöndum sem ekið hafði verið á.

Í númtímasamfélagi, sem háð er rafmagni öllum stundum, er gott til þess að vita að brugðist sé fljótt við atvikum sem þessum, hvort sem er á dagvinnutíma eða á öðrum tíma. Starfsfólk Norðurorku er meðvitað um mikilvægi þessarar þjónustu sem rafmagnsdreifing er og um sinn þátt í að hún sé alltaf til staðar og virki.

Ökum varlega í kringum götuskápa og látum vita ef við verðum vör við skemmdir á þeim.

  • Sími: 460 1300
  • Netfang: no@no.is