Vegna viðgerða á fráveitulögn í Þórunnarstræti, verður gatan lokuð í báðar áttir frá gatnamótum við Byggðaveg og upp að gatnamótum við Hamarstíg frá klukkan 7 að morgni þann 13. júní og fram á sunnudagskvöld 14. júní, eða eftir því sem verkinu vindur fram. Umferð íbúa við Þórunnarstræti verður heimil, en hafa þarf í huga að ekki verður hægt að komast framhjá vinnusvæðinu.
Við erum meðvituð um þau óþægindi sem framkvæmdirnar kunna að valda íbúum og vegfarendum. Við vonumst eftir gagnkvæmum skilningi og teljum að með samvinnu og góðum vilja sé hægt að leysa þau mál sem kunna að koma upp.
Sjá kort af vinnusvæði og hjáleiðir á skýringarmynd hér að ofan.