Norðurorka hf. óskar eftir tilboðum í síðasta áfanga lagningar nýrrar stofnæðar hitaveitu milli Akureyrar og Hjalteyrar. Áfanginn, sem þetta tilboð nær til afmarkast í norðri við dælustöð Norðurorku nærri Skjaldarvík og í suðri við pípuenda norðan við gatnamót Hlíðarbrautar og Hörgárbrautar á Akureyri, ásamt tengingum við núverandi lagnakerfi Norðurorku. Verkið felst í stórum dráttum í greftri, fyllingu og pípulögn ásamt öllum frágangi. Lengd stofnæðarinnar er um 5,1 km. Stofnæðin er DN500 stálpípa í ø710 mm hlífðarkápu úr plasti. Á lögnina koma útloftunarlokar, tæmingar ásamt lögnum frá þeim.
Einnig er um að ræða lagningu þrýstilagnar skólps frá skólpdælustöð við Sjafnargötu að skólpdælubrunni við Austursíðu 2. Þrýstilögnin er peh225
Sendið póst á Magnús Magnússon hjá Verkís (mm@verkis.is) ef óskað er eftir útboðsgögnum.
Opnunartími í afgreiðslu Rangárvöllum
Alla virka daga 8:00-15:00
Opnunartími þjónustuborðs
Mánudag - fimmtudags 8:00-16:00
Föstudag 8:00 - 15:20