10. apr 2018

Lokað fyrir kalt vatn vegna bilunar... UPPFÆRT Viðgerð lokið

Vegna bilunar er lokað fyrir kalt vatn í hluta Þórunnarstrætis, Klettastígs, Hamarstígs og Helgamagrastrætis í dag þriðjudaginn 10. apríl. Lokað verður á meðan viðgerð stendur yfir, nánari upplýsingar verða birtar hér á heimasíðunni þegar þær liggja fyrir.

Varast ber að nota heita vatnið á meðan þar sem það er óblandað og getur því verið mjög heitt.

Hér má sjá góð ráð við kaldavatnsrofi.

Hér að neðan má sjá mynd af lokunarsvæðinu.