Vegna framkvæmda í kringum stífluna í Glerárdal verður vegurinn lokaður frá svæði Skotfélags Akureyrar og upp að stíflunni, frá þriðjudeginum 6. október og út föstudaginn 9. október.
Hægt verður að komast upp að stíflunni austan megin við Glerá, en ekki yfir hana.
Stór vinnutæki verða notuð við framkvæmdirnar og til að tryggja öryggi allra er mikilvægt að vegfarendur virði lokanir. Vinsamlegast sýnið tillitssemi og aðgát við vinnusvæðið.
Skilti verða sett upp við veginn fyrir ofan skotsvæðið, á bílastæðinu við Súlur og við stífluna austan megin við ána.