2. nóv 2022

Við auglýsum eftir sérfræðingi í þjónustuver okkar

Norðurorka hf. óskar eftir að ráða tæknilega sinnaðan sérfræðing í þjónustuver.

Við erum að leita að einstaklingi með reynslu eða innsýn í upplýsingatækni, gagnavinnslu og rafræna þjónustu til að vinna með okkur í verkefnum sem tengjast rafvæðingu, orkuskiptum og úrvinnslu mælagagna svo fátt eitt sé nefnt.

Umsóknafrestur er til og með 16. nóvember 2022.

Fyrir frekari upplýsingar og/eða til sækja um starfið má smella hér.