Um síðustu helgi var ráðist í viðgerð á fráveitukerfinu í Þórunnarstræti, en þar uppgötvaðist fyrir stuttu að jarðvegur hafði sigið verulega og viðgerðin því mjög aðkallandi. Þórunnarstræti var lokið frá laugardagsmorgni og fram á seinnipart sunnudags, með tilheyrandi röskun fyrir íbúa í götunni og nálægum götum þar sem hjáleiðir voru.
Verktakar Norðurorku unnu verkið hratt og örugglega og er þeim þakkað kærlega fyrir skjót og fagmannleg vinnubrögð. Ekki er hægt að ganga að því vísu að verki á borð við þetta sé lokið innan þess tímaramma sem áætlaður er, þar sem ýmis vandamál geta komið upp þegar verið er að grafa ofan í jörðina sem erfitt er að sjá fyrir.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15