12. mar 2026

Viðurkenning fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum

Frá vinstri: Þorvaldur Þorsteinsson og Guðný Helga Herbertsdóttir frá VÍS. Starfsfólk Norðurorku: Gu…
Frá vinstri: Þorvaldur Þorsteinsson og Guðný Helga Herbertsdóttir frá VÍS. Starfsfólk Norðurorku: Gunnur Ýr Stefánsdóttir, Stella Árnadóttir, Elías Wium Guðmundsson, Eyþór Björnsson, Friðþór Smárason, Róar Björn Ottemo og Anna Klara Hilmarsdóttir ásamt Ingibjörgu Ásdísi Ragnarsdóttur frá VÍS.

Árleg Forvarnaráðstefna VÍS var haldin í Hörpu fimmtudaginn 12. mars en á ráðstefnunni var fjallað um öryggismál og forvarnir fyrirtækja og stofnana frá öllum hliðum. Að þessu sinni var ráðstefnan tileinkuð umferðaröryggi og boðið uppá erindi, reynslusögur og innsýn í öflugt öryggisstarf fyrirtækja, auk umfjöllunar um þær áskoranir sem steðja að íslensku samfélagi á þessu sviði.

Norðurorka hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum

Á ráðstefnunni eru jafnan Forvarnaverðlaunin afhent til þeirra fyrirtækja sem þykja skara fram úr í öryggismálum og eru öðrum fyrirtækjum góð fyrirmynd. Horft er til sterkrar öryggismenningar og markvissrar vinnu við að efla öryggisvitund og öryggishegðun meðal starfsfólks. 
Verðlaunað var í tveimur flokkum, þ.e. minni fyrirtæki (undir 100 starfsmenn) og stærri fyrirtæki.  Norðurorka var eitt af þremur fyrirtækjum sem tilnefnd voru úr hópi fjölmargra fyrirtækja í fyrrnefnda flokknum og hlaut á ráðstefnunni viðurkenningu fyrir góðan árangur í öryggis- og umhverfismálum.

Við erum virkilega stolt og ánægð að tilheyra þeim hópi fyrirtækja sem leggur áherslu á öryggi í allri sinni starfsemi og munum halda ótrauð áfram á sömu braut.