31. mar 2023

Viljayfirlýsing um könnun á nýtingu glatvarma frá TDK

Á myndinni eru: Gunnar Gunnarsson, viðhaldsstjóri TDK, Florian Delpoux, rekstrarstjóri TDK, Eyþór Bj…
Á myndinni eru: Gunnar Gunnarsson, viðhaldsstjóri TDK, Florian Delpoux, rekstrarstjóri TDK, Eyþór Björnsson, forstjóri Norðurorku og Stefán H. Steindórsson, sviðsstjóri veitu- og tæknisviðs hjá Norðurorku.

Í gær var undirrituð viljayfirlýsing milli Norðurorku og álþynnuverksmiðjunnar TDK á Krossanesi um fýsileikakönnun á nýtingu glatvarma frá TDK. Viljayfirlýsingin felur í sér samkomulag um könnun á nýtingu glatvarma með upphitun á bakrásarvatni úr kerfum Norðurorku. Ráðgjafar á vegum Norðurorku munu því á næstunni búa til skýrslu sem inniheldur frumhönnun, áætlaðan kostnað og mögulega tímalínu verkefnis auk áfangaskiptingar. 

Eyþór Björnsson forstjóri Norðurorku undirritar viljayfirlýsingu    Stefán H. Steindórsson, sviðsstjóri veitu- og tæknisviðs skrifa einnig undir samkomulagið

Glatvarmi er ónýttur varmi eða orka sem streymir frá fyrirtækjum sem hægt er að fanga og virkja. Frá verksmiðjunni TDK streymir mikið af heitu vatni sem vonast er til að hægt sé að nýta inn á kerfi Norðurorku með tiltölulega auðveldum hætti. Líkt og fram hefur komið í fréttum undanfarið er hitaveitan komin að þolmörkum. Nú þarf að leggja í meiri rannsóknir og leita lengra í leit að orkustraumum og er þetta samstarf við TDK þáttur í þeirri vegferð. Ef vel tekst til með nýtingu á glatvarma frá TDK verður það mikil lyftistöng í rekstri hitaveitunnar og leiðir til þess að hægt er að hægja á fjárfestingum í jarðhitavinnslu.