10.03.2014
Eins og fram er komið tók Norðurorka við rekstri fráveitu Akureyrarbæjar um síðastliðin áramót. Í samningi Norðurorku hf. og Akureyrarbæjar er gert ráð fyrir ákveðnum aðlögunartíma þar sem yfirfærsla sem þessi tekur alltaf ákveðinn tíma. Frá áramótum hefur markvisst verið unnið að yfirfærslunni.
25.02.2014
Vegna tengina verður rafmagn tekið af aðfaranótt miðvikudags 26.02.2014 Kl. 00:30 - 05:00 í Víðilundi, Akurgerði, Einilundi og Kaupangi v/ Mýrarveg.
19.02.2014
Háskólinn á Akureyri og Norðurorka undirrituðu í dag samning um eflingu rannsókna við skólann
Samningurinn felur í sér að Norðurorka styrkir rannsóknarstarf við Háskólan með framlagi í Rannsóknarsjóð skólans. Um er að ræða árleg framlög 2014, 2015 og 2016.
18.02.2014
Eins og fram hefur komið í fréttum komu bormenn Vaðlaheiðaganga inn á vatnsæð í göngunum sem er tæplega 50°C heit. Strax við hönnun gangnanna var gert ráð fyrir þeim möguleika að þau hittu á vatnsæðar í berginu og af þeirri ástæðu gerðu Vegagerðin og Norðurorka hf. með sér samkomulag árið 2011 sem fól í sér viðbrögð við mögulegri vatnsþurrð í kaldavatnsbólum í heiðinni.
17.02.2014
Svo virðist sem hola LN-12 á Laugalandi sé búin að hreinsa sig af leirnum sem komst í hana fyrir helgi.
13.02.2014
Enn ber á leir í vatninu úr holu LN-12 á Laugalandi.
12.02.2014
Í dag fór að bera á leirlituðu hitaveitu vatni í Eyjafjarðarsveit austanverðri. Í fyrstu var búist við því að leirinn skolaðist út framarlega í dreifikerfinu en nú er ljóst að svo er ekki. Fyrir liggur að leirlitaða vatnið kemur úr borholu á Laugalandi (LN-12) og eru ástæður þess líklega þær að einhver hreyfing hefur orðið á borholuvegg í þessari borholu.
12.02.2014
Nokkuð hefur borið á því að heita vatnið sé leirlitað í Eyjafjarðarsveit austanverðri.
12.02.2014
Við leitum að starfsmanni í stöðu umsjónarmanns fasteigna.
11.02.2014
Rúmlega 20 umsóknir bárust um stöðu verkefnastjóra á framkvæmdasviði.