2. okt 2021

Hitaveitubrunnur fjarlægður úr kerfi Norðurorku

Í hitaveitukerfi Norðurorku er töluverður fjöldi af gömlum hitaveitubrunnum en eitt af viðhaldsverkefnum fyrirtækisins er að fjarlægja þessa brunna úr kerfinu og bæta þannig afhendingaröryggi veitunnar, öryggi starfsfólks og bæta vinnuaðstæður.

Umræddir hitaveitubrunnar eru steinsteypt jarðhýsi þar sem ýmsar tengingar lagna koma saman, þenslustykki, lokar og fleira. Með breyttri tækni og efni eru þessir brunnar orðnir úreltir og gera langtímaáætlanir Norðurorku ráð fyrir því að brunnarnir verði lagðir af með tíð og tíma. Í stað hitaveitubrunns eru settir jarðvegslokar sem gera það að verkum að starfsfólk þarf ekki lengur að fara ofan í hættulegan brunninn til að skrúfa fyrir loka komi upp bilanir á aðliggjandi lögnum eða ef tengja þarf ný hús inn á þær.

Það að fjarlægja hitaveitubrunn er stórt og tímafrekt verk sem krefst þess meðal annars að vatn sé tekið af ákveðnum svæðum á meðan vinna stendur yfir. Viðskiptavinir sem rofið snertir eru þá, með ákveðnum fyrirvara, upplýstir um rofið með sms skilaboðum eða eftir öðrum leiðum. Rétt er að nýta tækifærið hér til að minna á að hægt er að skrá gsm númer sitt hjá Norðurorku með því að fara inn á „mínar síður“ á heimasíðunni www.no.is eða með því að hringja í þjónustuver í síma 460-1300.

Laugardaginn 2. október er unnið að því að fjarlægja brunn sem staðsettur er á gatnamótum Skarðshlíðar og Höfðahlíðar. Framkvæmdir við gatnagerð eru nú í gangi á svæðinu á vegum Akureyrarbæjar og því eru samlegðaráhrif falin í því að fara í brunnafjarlæginguna á sama tíma. 

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem gefa gleggri mynd af framkvæmd af þessu tagi. Myndirnar sem stuðst er við eru frá því að brunnur var tekinn í Vestursíðu á sínum tíma.

Hér, eins og annarsstaðar, segja myndir meira en þúsund orð um framgang verks af þessu tagi.