26. jún 2019

Hitaveitubrunnar fjarlægðir

Á sumrin nýta margir góða veðrið til framkvæmda af ýmsu tagi. Þannig er það einnig hjá Norðurorku sem nýtir sumartímann gjarnan í ýmiskonar viðhald samhliða öðrum verkum. Eitt af langtímaverkefnum fyrirtækisins er að fjarlægja gamla hitaveitubrunna úr kerfinu og bæta þannig afhendingaröryggi veitunnar og vinnuaðstæður starfsfólks.

Í hitaveitukerfi Norðurorku er töluverður fjöldi af hitaveitubrunnum. Um er að ræða steinsteypt jarðhýsi þar sem ýmsar tengingar lagna koma saman, þenslustykki, lokar og fleira.

Með breyttri tækni og efni eru þessir brunnar orðnir úreltir og gera langtímaáætlanir Norðurorku ráð fyrir því að brunnarnir verði lagðir af með tíð og tíma. Í stað hitaveitubrunns eru settir jarðvegslokar sem gera það að verkum að starfsfólk þarf ekki lengur að fara ofan í hættulegan brunninn til að skrúfa fyrir loka komi upp bilanir á aðliggjandi lögnum eða ef tengja þarf ný hús inn á þær.

Það að fjarlægja hitaveitubrunn er stórt og tímafrekt verk sem krefst þess meðal annars að vatn sé tekið af ákveðnum svæðum á meðan vinna stendur yfir. Viðskiptavinir sem rofið snertir eru þá, með ákveðnum fyrirvara, upplýstir um rofið með sms skilaboðum eða eftir öðrum leiðum. Rétt er að nýta tækifærið hér til að minna á að hægt er að skrá gsm númer sitt hjá Norðurorku með því að fara inn á „mínar síður“ á heimasíðunni www.no.is  eða með því að hringja í þjónustuver í síma 460-1300.

Þessa dagana er unnið að því að fjarlægja brunn sem staðsettur er í Hjalteyrargötu, neðan Tryggvabrautar. Undirbúningur fyrir framkvæmdina hefur staðið yfir í nokkurn tíma enda að mörgu að hyggja s.s. afmörkun lokunarsvæðis, yfirfara þarf lagnateikningar, ástandsskoða búnað sem þarf í verkið, fara yfir öryggismál, merkingar og fleira.  

Hér að neðan eru nokkrar myndir sem gefa gleggri mynd af framkvæmd af þessu tagi. Myndirnar sem stuðst er við eru frá því að brunnur var tekinn í Vestursíðu.

Hér, eins og annarsstaðar, segja myndir meira en þúsund orð um framgang verks af þessu tagi.