6. jún 2018

Norðurorka óskar eftir að ráða aðalbókara

Norðurorka hf. óskar eftir að ráða aðalbókara til starfa á fjármálasviði fyrirtækisins. Starfið heyrir undir sviðstjóra á þjónustu- og fjármálasviði.

Umsjón með ráðningunni hefur Erla Björg Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri.

Upplýsingar um starfið veitir Halla B. Halldórsdóttir, sviðsstjóri fjármálasviðs í síma: 460 1332 eða tölvupósti: hbh@no.is.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2018

Sjá frekari upplýsingar hér.