Norðurorka rekur mikilvæga innviði sem samfélagið reiðir sig á alla daga ársins og við viljum að sjálfsögðu vera í góðum sambandi við okkar viðskiptavini.
Til að lágmarka líkur á því að COVID-19 faraldurinn hafi áhrif á starfsfólk okkar og þar með rekstur fyrirtækisins óskum við eftir því að viðskiptavinir lágmarki komur sínar í þjónustuver eins og kostur er og nýti frekar aðrar leiðir fyrir erindi sín.
- Hér á heimasíðu okkar, www.no.is, má finna ýmsar upplýsingar t.d. leiðbeiningar um mælaálestur og Mínar síður.
- Netfangið okkar er no@no.is. Þangað má senda inn fyrirspurnir sem við leggjum metnað í að svara fljótt og vel.
- Símanúmerið okkar í þjónustuveri er 460-1300.
Við vonumst til þess að viðskiptavinir sýni þessari beiðni skilning og hjálpi okkur þannig við að tryggja samfelldan og öruggan rekstur þrátt fyrir núverandi bylgju COVID-19 faraldursins.
Opnunartími í afgreiðslu:
Alla virka daga kl. 8-15
Opnunartími þjónustuborðs:
Mánudag til fimmtudags kl. 8-16
Föstudag kl. 8-15:20