Metan

Hvaðan kemur metanið?

Norðurorka hóf framleiðslu metangass úr gömlu ruslahaugunum á Glerárdal fyrir ofan Akureyri í ágústlok árið 2014. Markmið verkefnisins var og er að fanga það metan sem myndast á haugunum og brenna það en þannig drögum við margfalt úr neikvæðum umhverfisáhrifum. Það að hreinsa gasið svo hægt sé að nýta það sem eldsneyti dregur enn frekar úr skaðskemi þess og sparar innflutning á jarðefnaeldsneyti.

Framleiðslugeta haugsins er minni er áætluð var í upphafi, enda var haugurinn ekki skipulagður með metanvinnslu í huga. Um er að ræða mjög gamaldags ruslahaug þar sem efnaúrgangur, heimilissorp, bílhræ og allt þar á milli er urðað í bland og erfitt er að átta sig á innihaldi haugsins og uppbyggingu hans. Þetta gerir alla áætlanagerð sem og reksturinn erfiðari. Það er fleira sem hefur áhrif, til dæmis veðurfar. Í miklu frosti og í þurru veðri (líkt og sumarið 2021) dregur úr framleiðslu. Þetta er eitthvað sem við getum ekki stjórnað en við reynum okkar allra besta til að fylgjast með og erum alltaf að verða betri í að læra á hauginn. Það er þó alveg ljóst að framleiðslugetan fer minnkandi.

Í samvinnu við SORPU, sem framleiðir metangas í Reykjavík, er metan nú flutt til Akureyrar. Þetta er gert til þess að halda þeim markaði sem byggður hefur verið upp fyrir metan á svæðinu og skapa grundvöll fyrir frekari metanvæðingu. Frekari metanvæðing getur þó ekki hafist fyrr en metanframleiðsla við stýrðar aðstæður hefst á svæðinu enda eru flutningar á metangasi bæði kostnaðarsamir og mengandi. Ekki er ljóst á höndum hverra slík framleiðsla kemur til með að vera. Hlutverk Norðurorku er að safna því metani sem myndast á gömlu ruslahaugunum á Glerárdal og vinna úr því eldsneyti. Það er verkefni samfélagsins að finna lausnir til frekari framleiðslu á metangasi og hefur Norðurorka bent á mikilvægi þess að hefja þá vinnu

Aðrir flokkar