Fréttir & tilkynningar

Rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis - Viðgerð lokið.

Vegna bilunar í spennistöð við Miðhúsabraut varð rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis fyrr í kvöld (sjá kort). Bruni kom upp í spennistöðinni rétt fyrir klukkan sex, viðgerð gekk framar vonum og er nú lokið. Hrós fá allir sem að komu fyrir góð og fagmannleg viðbrögð. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis - Viðgerð lokið.

Vegna bilunar í spennistöð við Miðhúsabraut varð rafmagnslaust í hluta Naustahverfis og Teigahverfis fyrr í kvöld (sjá kort). Bruni kom upp í spennistöðinni rétt fyrir klukkan sex, viðgerð gekk framar vonum og er nú lokið. Hrós fá allir sem að komu fyrir góð viðbrögð. Norðurorka óskar öllum gleðilegra jóla.

Örugg jól

Þessa dagana er mikið að gera við að koma jólaljósunum fyrir. Að mörgu er að hyggja við val, uppsetningu og frágang á jólaseríum.

Samfélagsstyrkir vegna ársins 2018 - Umsóknafrestur er liðinn

Á haustdögum var auglýst eftir umsóknum um styrki til samfélagsverkefna vegna ársins 2018 og rann umsóknarfrestur út þann 17. nóvember sl.. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Tvö rafmagnsrof í hluta Giljahverfis á miðvikudag

Vegna vinnu við dreifikerfi verður LOKAÐ fyrir RAFMAGN í tveimur hlutum Giljahverfis miðvikudaginn 22.11.2017. Athugið að um tvö verk er að ræða með mismunandi lokunarsvæðum og tímasetningu. Sjá nánar með því að smella á fyrirsögn.

Alþjóðlegi klósettdagurinn 19. nóvember

Alþjóðlegi klósettdagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur 19. nóvember ár hvert frá árinu 2013 á vegum UN Water. Honum er ætlað að minna á að ekki búa allir við þann lúxus að hafa salerni á heimili sínu, sem hefur gríðarleg áhrif á lífsgæði og lífslíkur fólks um allan heim. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Rafmagnsrof 08.11. og 09.11. 2017 á hluta Eyrarinnar

Vegna vinnu við dreifikerfi verður LOKAÐ fyrir RAFMAGN á hluta Eyrarinnar. Áætlaður tími er frá kl. 22:30 miðvikudagskvöldið 08.11.2017 til 5:30 fimmtudagsmorguninn 09.11.2017. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Búið er að hleypa vatni á í Síðuhverfi

Búið er að hleypa vatni á í Síðuhverfi. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin kann að hafa valdið.

Lokað fyrir heitt vatn í hluta Síðuhverfis

Vegna bilunar verður LOKAÐ fyrir HEITT VATN í hluta Síðuhverfis á morgun, fimmtudaginn 26.10.2017. Áætlaður tími er frá kl. 08:00 og fram eftir degi eða þar til viðgerð lýkur. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Auglýst eftir umsóknum um styrk til samfélagsverkefna

Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum um styrki vegna ársins 2018. Umsóknarfrestur er til og með 17. nóvember 2017 og er gert ráð fyrir að styrkjum verði úthlutað fyrir miðjan janúar 2018. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.