Fréttir & tilkynningar

Viðgerð lokið í Fjólugötu og Norðurgötu

Nú er viðgerð lokið í Fjólugötu/Norðurgötu og búið er að hleypa vatni á að nýju. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin kann að hafa valdið.

Lokað fyrir heitt vatn vegna bilunar

Vegna bilunar er LOKAÐ fyrir HEITT VATN í Fjólugötu og Norðurgötu 32, 33, 34, 35, 36 og 38 NÚ ÞEGAR í dag miðvikudaginn 11.10.2017. Sjá meira með því að smella á fyrirsögnina.

Rafhjól er ódýrt umhverfisvænt samgöngutæki

Norðurorka hefur undanfarin ár hvatt starfsfólk sitt til þess að ferðast til og frá vinnu á vistvænan máta. Í sumar tók starfsfólk Norðurorku sig saman um hópkaup á rafhjólum en keypt voru 30 reiðhjól af gerðinni Cube sem verslunin TRI í Reykjavík selur (www.tri.is). Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Metanframleiðslan komin í gang

Viðgerðum á gashreinsistöðinni er lokið og framleiðsla komin í gang á nýjan leik. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.

Bilun í metanstöð

Vegna bilunar í hreinsistöð fyrir metan er ekki unnt að afgreiða metan frá afgreiðslustöð. Búið er að greina bilunina og er nú beðið eftir varahlutum frá Svíþjóð. Sjá meira með því að smella á fyrirsögn.

Breyting á verðskrá rafveitu þann 1. ágúst 2017

Þann 1. ágúst sl. hækkaði gjaldskrá rafveitu í kjölfar hækkunar Landsnets á flutningsgjaldi. Áhrifin hjá viðskiptavinum Norðurorku nema 2,65% á hverja kílóvattstund sem birtist þá sem hækkun á rafmagnsreikningum frá Norðurorku úr 6,40 kr. í 6,57 kr. fyrir hverja kílóvattstund.

Heitavatnsrof í innbænum í dag

Vegna vinnu við stofnkerfi hitaveitu verður LOKAÐ fyrir HEITT VATN suður Hafnarstræti frá og með nr. 47, Aðalstræti suður fyrir Skautahöll, Spítalavegur, Tónatröð og Lækjargötu í dag, miðvikudaginn 16. ágúst 2017. Áætlaður tími er frá kl. 8.00 og fram eftir degi. Sjá meira

Metanframleiðsla komin í gang

Viðgerðum á gashreinsistöðinni er lokið og framleiðsla komin í gang á nýjan leik.

Bilun í metanstöð

Bilun kom upp í hreinsistöð fyrir hauggasið. Á meðan er ekki unnt að afgreiða metan frá afgreiðslustöð. Unnið er að viðgerð.

Hreinsistöð fráveitu

Norðurorka hefur unnið að undirbúningi byggingar hreinsimannvirkis fyrir fráveitu Akureyrar frá árinu 2014 þ.e. frá þeim tíma sem félagið yfirtók fráveitukerfið. (Sjá meira með því að smella á fyrirsögn)